Enn ein byrjunin

Enn einusinni ætla ég að gera tilraun til þess að blogga annað slagið. Held þó að þetta verði allt í rólegri kanntinum, men fáum bloggum, en mér hefur þótt vanta möguleikann á að geta bloggað þegar mér finnst ég hafa eitthvað að segja.

Í því tilefni ákvað ég að setja upp nýtt blogg og breytta síðu. WordPress var ekki að gera sig, og var allt of mikið um spam og leiðindi. Annar tilgangur með nýrri síðu er svo að geta fiktað í heimasíðugerð. Ég hef haft gaman af því að fikta í þessu og reyna að læra meira á php og sql forritun.

Síðuna setti ég upp á ensku, og getur verið að einhverjar færslurnar mínar verði á ensku. Allt eftir því hvort ég búist við að einhverjir aðrir en íslendingar eigi eftir að lesa færsluna. Ég hef fulla trú á að flestir lesendur geti líka bjargað sér á ensku. Ef ekki, er hægt að senda inn kvörtun, sem líklegast verður ekki tekið tillit til :)

Ég vona að þið sem eruð komin hingað inn, eigið eftir að líta við reglulega. Hægt er að kommenta á færslurnar mínar, með því að ýta á "Comment" hér fyrir neðan.

|

Login